01.10.2009
Yfir hafið og heim - ný auglýsingaherferð Eimskips
Eimskip hefur hrundið af stað nýrri auglýsingaherferð með slagorðinu Yfir hafið og heim. Undir myndefninu hljómar hinn ástsæli Sjómannavals sem Svavar Benediktsson samdi við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk.
Sjómannavalsinn er endurútgefinn af hljómsveitinni Hjaltalín og fulla útgáfu af laginu er hægt að kaupa á vefsíðunni tónlist.is fyrir aðeins 149 krónur, en þess má geta að allur ágóði af sölu lagsins rennur óskiptur til Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufra.
Tilgangur herferðarinnar er að undirstrika meginstefnu félagsins, sem er flutningastarfsemi, og innri vöxt á næstu árum.