25.02.2010
Úrslitaleikir í Eimskipsbikarnum
Næstkomandi laugardag, 27. febrúar, munu úrslitaleikir í Eimskipsbikarnum fara fram í Laugardalshöllinni. Klukkan 13:30 keppa lið Fram og Vals í kvennaflokki. Leikir þessara liða í vetur hafa verið afar jafnir og skemmtilegir, jafnt varð í öðrum en Valsstúlkur sigrðuðu í hinum með þriggja marka mun.
Seinna um daginn, klukkan 16:00 etja svo kappi karlalið Vals og Haukar, en þau lið hafa verið með allra bestu liðum landsins um nokkurt skeið. Leik þeirra í vetur lauk með jafntefli, 20-20, og má búast við hörkurimmu á laugardaginn.
Hér er því á ferðinni góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna, sem hefst klukkan 13:30 og lýkur vel fyrir kvöldmat!
Miða á leikina er hægt að nálgast á vefsíðunni miði.is með því að smella hér.

Til baka