Útflutningur
Útflutningsdeild Eimskips veitir ráðgjöf og sér um sölu og þjónustu við útflytjendur.
Deildin hefur á að skipa reyndum ráðgjöfum og öflugu starfsfólki sem, ásamt starfsmönnum Eimskips um allan heim, mynda þétt net flutningaþjónustu í því alþjóðlega umhverfi sem útflytjendur búa við í dag.
Eimskip á Íslandi eins og allar erlendar starfsstöðvar Eimskips hafa á að skipa reyndum ráðgjöfum í sjávarútvegi og mynda þannig þétt net ráðgjafa sem sérhæfa sig í þjónustu og flutningalausnum í hinu alþjóðlega umhverfi sem sjávarútvegurinn býr við.
Hvort sem um er að ræða þurrvöru, ferskvöru eða frosna vöru, þá leysum við þín mál sem snúa að útflutningi. Við sjáum um að koma vöru þinni á réttan stað, hvort sem um er að ræða heilgámasendingar eða smærri sendingar.
Hafðu samband við viðskiptaþjónustu Eimskips í síma 525 7800 og fáðu frekari upplýsingar frá starfsfólki okkar
Eimskip býður upp á margskonar útflutningsþjónustu. Veldu þá leið sem hentar þér:
Almennir flutningar
Búslóðaflutningur
Hitastýrðir flutningar
Tollskjalagerð
Vöruhúsaþjónusta
Aðrar upplýsingar:
Lokatímar flutningsfyrirmæla og bókana
Innihaldsþungi gáma
Flutningsfyrirmælaform