29.08.2008
Herjólfur á leið í slipp
Herjólfur er á leið í slipp á Akureyri, og mun St. Ola taka við siglingum á meðan.
Áætlað er að Herjólfur klári áætlun sunnudaginn 29. september í Vestmannaeyjum, og sigli fljótlega eftir það til Akureyrar. Ráðgert er að skipið verði komið til Eyja á ný í tæka tíð til að hefja áætlun að morgni 9. október.
St. Ola kemur til Vestmannaeyja 29. september, og siglir sína fyrstu ferð á milli lands og Eyja að morgni 30. september, þannig að engin fer kemur til með að falla niður.
Til baka