27.08.2009

Herjólfur fer í slipp

Herjólfur fer í slipp á Akureyri í lok áætlunarsiglinga sunnudaginn 13. september, og leggur aftur af stað frá Þorlákshöfn föstudaginn 25. september klukkan 12:00.

Í hans stað mun Breiðafjarðarferjan Baldur standa vaktina, og verða ferðir hans sem hér segir;

Frá Vestmannaeyjum: 08:00 og 16:00 daglega
Frá Þorlákshöfn:  12:00 og 19:30 daglega

Þar sem Baldur hefur talsvert minni flutningsgetu en Herjólfur, má búast við því að uppselt verði í einhverjar áætlunarferðir.

Til baka
| Klettagörðum 15 | 104 Reykjavík | Upplýsingar í síma 525 7700 og 481 2800 | Fax 525 7709  og 481 2991 |