Fréttalisti

19.04.2010

Viðbragðsáætlun vegna eldsumbrota í Eyjafjallajökli - UPPFÆRT

Vegna eldsumbrota í Eyjafjallajökli er óhjákvæmilegt að áætlanir í flutningakerfi Eimskips Flytjanda raskist.  Þjóðvegi 1 hefur verið lokað frá Hvolsvelli að Vík í Mýrdal.

Áætlunarferðir til Víkur og Klausturs falla niður í dag, miðvikudaginn 14. apríl, á meðan verið að skoða hvernig tryggja má flutning á svæðið. Nánari upplýsingar munu birtast hér á morgun.

Allir áætlanabílar til Austfjarða munu aka norður fyrir land til Reyðarfjarðar á meðan þetta óvissuástand ríkir.

Vörur til og frá svæðinu sunnan Reyðarfjarðar verður dreift af afgreiðslu Eimskips á Reyðarfirði til afgreiðslustöðva á Djúpavogi og Hornafirði.

- - Uppfært fimmtudaginn 15.04 - -

Stefnt er að því að flutningabifreiðum á leið til Víkur og Kirkjubæjarklausturs með nauðsynjavörur verði hleypt í gegnum hamfarasvæðið nú síðdegis, fimmtudaginn 15. apríl.

Vörum til og frá svæðinu sunnan Reyðarfjarðar verður áfram dreift frá afgreiðslu Eimskips á Reyðarfirði til afgreiðslustöðva á Djúpavogi og Hornafirði.

- - Uppfært föstudaginn 16.04 - -

Í dag, föstudaginn 16. apríl, ganga áætlanaferðir til Víkur og Kirkjubæjarklausturs eins eðlilega fyrir sig og núverandi aðstæður leyfa. Flutningabifreiðar aka austur yfir gömlu Markarfljótsbrúna, en heildarþungi bifreiða þar er takmarkaður við 12 tonn.

- - Uppfært mánudaginn 19.04 - -

Ekki er útlit fyrir að áætlunarferðir til Víkur og Kirkjubæjarklausturs verði samkvæmt áætlun í dag, 19.04.2010. Áætlun á svæðinu mun raskast næstu daga, en stöðugt er fylgst með tíðindum af náttúruhamförunum.

Til baka