Búslóðaflutningur frá Íslandi

Eimskip leggur áherslu á að veita góða alhliða þjónustu í búslóðarflutningum sem og öðrum flutningum. Það er að mörgu að hyggja þegar flytja á búslóð á milli landa og því mikilvægt að eigandi búslóðar kynni sér vel upplýsingar okkar um flutningaferlið ásamt reglum um búsetu viðkomandi lands. Athygli er vakin á því að starfsmenn Eimskips eru ekki sérfræðingar í þeim reglum sem hvert land fyrir sig setur um búsetu eða búferlaflutninga.

Það er allra hagur að búslóðaflutningar séu vel skipulagðir áður en til flutnings kemur.
Við biðjum því viðskiptavini okkar að kynna sér vel eftirfarandi upplýsingar og lesa yfir öll skrefin áður en ferlið er hafið.

1. Magn og flutningsmáti
Það er lykilspurning þegar fólk er að ákveða hvernig flutningi skal háttað að átta sig á stærð búslóðarinnar. Til þess að átta sig á hversu stór búslóðin er bendum við á búslóðareikninn okkar. Þar er hægt að fá viðmiðunartölu fyrir stærð búslóðarinnar til að nota í tilboðsbeiðni.

Það er alfarið í höndum viðskiptavinar að finna út hversu stór búslóð hans er. Eimskip mælir með að flutt sé í heilum gámi og engin önnur vara með sé búslóðin stærri en 12 cbm, það er öruggara og hagkvæmara fyrir eiganda búslóðarinnar.

Rúmtak/Burðargeta 20 feta þurrgámur – DC22
L: 5900MM 2.230 KG 33 m³ 21.770-
B. 2.350 MM b:2.340 mm 28.250 kg
H: 2.390 MM H:2.280 MM

Rúmtak/Burðargeta 40 feta þurrgámur – DC43
L: 12.030 mm 3.800 kg 67m³ 26.680 kg
B. 2.350 mm B: 2.340 mm
H: 2.390 mm H:2.280 mm

2. Tilboðsbeiðni
Þegar umfang búslóðar hefur verið metið er næsta skref að leita tilboðs í flutninginn.
Mikilvæg er að fara í gegnum öll skrefin sem á eftir koma áður en tilboð er sent. Einnig er mikilvægt að lesa textann sem kemur upp þegar beðið er um tilboð.

3. Skjöl sem þarf að fylla út áður en búslóð er flutt

1) Flutningsfyrirmæli - til að tryggja hraðan og öruggan flutningsmáta búslóðar
2) Innihaldslisti - fyrir tollayfirvöld og verðmætamat fyrir tryggingar

Þegar flutt er til Bandaríkjanna þarf einnig að fylgja skannað eintak af vegabréfi og vegabréfsáritun allra sem eru að flytja.

Flutningsfyrirmæli og innihaldslista fyllir þú út á netinu síðar í ferlinu, og frumriti tollafgreiðslublaðs þarf að skila á skrifstofu okkar útfylltu og undirrituðu af eiganda búslóðarinnar.

4. Tryggingar
Nauðsynlegt er að taka fram heildarverðmæti búslóðar í innihaldslista til að hægt sé að ganga frá tryggingum. Tryggingariðgjald er greitt samhliða flutningsgjöldum. Allar búslóðir eru sjálfkrafa tryggðar og er iðgjaldið 1 % af verðmæti hennar + flutningsgjald. Lágmark tryggingariðgjalds er 5000 kr. Ef til tjóns kemur er sjálfsábyrgð viðskiptavinar 10.000 kr

5. Sölupöntunarnúmer
Eimskip gefur viðskiptamanni sölupöntunarnúmer þegar búið er að skila inn flutningsfyrirmælum, innihaldslista og frumriti af tollafgreiðslupappírum.

6. Pökkun
Áður en búslóð er sótt af Eimskip eða viðskiptamaður skilar búslóð til Eimskips þarf að ganga úr skugga um að öllum hlutum sé tryggilega pakkað og þeir merktir. Það er á ábyrgð eiganda búslóðarinnar að pakka öllu vel. Vinsamlega merkið allar einingar vel. Eimskip getur annast pökkun á búslóð með aðstoð þriðja aðila sé þess óskað og þarf að greiða sérstaklega fyrir þá þjónustu.

7. Farmverndarskírteini
Ef niðurstaða er að flytja skuli búslóð í heilgámi þarf viðskiptamaður að skila inn farmverndarskírteini með gámnum að kröfu tollayfirvalda áður en eða um leið og gámurinn er afhentur Eimskip.

Öryggisþjónusta Eimskips annast farmverndarþjónustu. Síminn er 525-7100 eða á netfangið portsecurity@eimskip.is

8. Skilatími
Suðurleið: lausavara fyrir kl. 16:00 á mánudegi. Fyrir heilgáma er lokunartími kl 16:00 á mánudegi.
Norðurleið:
lausavara fyrir kl 14:00 á þriðjudögum. Fyrir heilgáma er lokatími kl 16:00 á miðvikudögum.

9. Greiðslufyrirkomulag
Greiða þarf flutningsgjald áður en sending fer frá landinu. Hægt er að greiða með símgreiðslu (kreditkort), millifærslu á bankareikning Eimskips eða greiða greiðsluseðil sem berst í heimabanka viðskiptavinar.

Reikningur: 0111-26-2914
kt: 421104-3520
IBAN: IS93 0111 2600 2914 4211 0435 20 
Swift code: NBIIISRE

10. Ábyrgð
Það er ábyrgð eiganda búslóðar að fylgjast með komu skips og hafa samband við skrifstofu til að taka lokaskrefin í flutningsferlinu, vegna tollafgreiðslu og afhendingar.Búslóðir eru ekki fluttar áfram frá Eimskip til áfangastaðar fyrr en viðskiptavinur hefur sett sig í samband við skrifstofu í viðkomandi landi. Gera má ráð fyrir um fimm virkum dögum í afgreiðslu búslóðar.

Áður en búslóð fæst afhent þarf eigandi eða umboðsaðili eiganda að fylla út og skila tollskýrslu og yfirlýsingu til viðkomandi Tollstjóraembættis . Ekki er leyfilegt að skrá búslóð á fyrirtæki í flutningi til landsins.

11. Tollareglur
Athugið að ef um tollskyldan varning er að ræða í búslóðum þarf að fylla út E1 tollskýrslu. Nauðsynlegt er að hafa kvittanir fyrir öllum vörum sem keyptar hafa verið. Tollskyldur varningur er til dæmis allt áfengi og hlutir sem fólk hefur verslað erlendis innan við ári fyrir heimflutning. Bent er á heimasíðu Tollstjóraembættisins í sambandi við þetta. Greiða þarf sérstaklega fyrir slíka skýrslu, sem er gerð af tollskjaladeild Eimskips.

12.Gámaleiga og geymslugjöld
Ef búslóð sem flutt er sem heilgámur er lengur en 5 daga hjá okkur eftir að skip kemur að landi, þarf að greiða svæðisgjöld. Að 8 dögum liðnum reiknast gámaleiga daglega þar til gámur er afhentur. Ef búslóð er flutt sem lausavara þá reiknast geymslugjöld ef hún er ekki sótt innan fjögurra daga.

Til að fá tilboð í búslóðaflutning, smellið hér.

Vonandi nýtast þessir punktar ykkur vel þegar skipuleggja á flutning til Íslands. Ef þið hafið frekari spurningar þá endilega hafið samband við búslóðadeild okkar í síma 525 7550 eða tölvupóstinn buslodir@eimskips.is

Við bendum fólki á að kynna sér vel heimasíðu Tollstjóraembættisins, þar sem hægt er að nálgast búslóðaryfirlýsingu með því að smella hér. Búslóðaryfirlýsingu er nauðsynlegt að fylla út til að hægt sé að tollafgreiða búslóðina.

Hvert viltu fara?

Til að nálgast eyðublöð sem þarf að fylla út þegar búslóðir eru fluttar þarf að velja það land sem áætlað er að flytja til.

Ef það land sem þú ert að flytja til er ekki á kortinu veldu þá "önnur lönd".