Búslóðaflutningur til Íslands

Eimskip leggur áherslu á að veita góða alhliða þjónustu í búslóðarflutningum sem og öðrum flutningum. Það er að mörgu að hyggja þegar flytja á búslóð á milli landa og því mikilvægt að eigandi búslóðar kynni sér vel upplýsingar okkar um flutningaferlið ásamt reglum um búsetu viðkomandi lands.

Það er allra hagur að búslóðaflutningar séu vel skipulagðir áður en til flutnings kemur.
Við biðjum því viðskiptavini okkar að kynna sér vel eftirfarandi upplýsingar og lesa yfir öll skrefin áður en ferlið er hafið.

1. Magn og flutningsmáti
Það er lykilspurning þegar fólk er að ákveða hvernig flutningi skal háttað að átta sig á stærð búslóðarinnar. Til þess að átta sig á hversu stór búslóðin er bendum við á búslóðareikninn okkar. Þar er hægt að fá viðmiðunartölu fyrir stærð búslóðarinnar til að nota í tilboðsbeiðni.

Það er alfarið í höndum viðskiptavinar að finna út hversu stór búslóð hans er. Eimskip mælir með að flutt sé í heilum gámi og engin önnur vara með sé búslóðin stærri en 12 cbm, það er öruggara og hagkvæmara fyrir eiganda búslóðarinnar.

Rúmtak/ Burðargeta 20 feta þurrgámur – DC22
L: 5900MM 2.230 KG 33 m³ 21.770-
B. 2.350 MM b:2.340 mm 28.250 kg
H: 2.390 MM H:2.280 MM

Rúmtak/ Burðargeta 40 feta þurrgámur – DC43
L: 12.030 mm 3.800 kg 67m³ 26.680 kg
B. 2.350 mm B: 2.340 mm
H: 2.390 mm H:2.280 mm

2. Tilboðsbeiðni
Þegar umfang búslóðar hefur verið metið er næsta skref að leita tilboðs í flutninginn.
Mikilvæg er að fara í gegnum öll skrefin sem á eftir koma áður en tilboð er sent. Einnig er mikilvægt að lesa textann sem kemur upp þegar beðið er um tilboð.

3. Skjöl sem þarf að fylla út áður en búslóð er flutt

1) Flutningsfyrirmæli - til að tryggja hraðan og öruggan flutningsmáta búslóðar. Vinsamlega athugið að Tilboðsbeiðni er jafnframt Flutningsfyrirmæli fyrir búslóðir. Samþykkja þarf búslóðarflutningsskilmála Eimskips til að senda inn tilboðsbeiðni sem einnig felur í sér flutningsfyrirmæli.
2) Innihaldslisti - fyrir tollayfirvöld og verðmætamat fyrir tryggingar

Þegar flutt er til Bandaríkjanna þarf einnig að fylgja skannað eintak af vegabréfi og vegabréfsáritun allra sem eru að flytja.

Flutningsfyrirmæli og innihaldslista fyllir þú út á netinu síðar í ferlinu, og frumriti tollafgreiðslublaðs þarf að skila á skrifstofu okkar útfylltu og undirrituðu af eiganda búslóðarinnar.

4. Tryggingar
Nauðsynlegt er að taka fram heildarverðmæti búslóðar í innihaldslista til að hægt sé að ganga frá tryggingum. Tryggingariðgjald er greitt samhliða flutningsgjöldum. Allar búslóðir eru sjálfkrafa tryggðar og er iðgjaldið 1 % af verðmæti hennar + flutningsgjald. Lágmark tryggingariðgjalds er 5000 kr. Ef til tjóns kemur er sjálfsábyrgð viðskiptavinar 10.000 kr

5. Sölupöntunarnúmer
Eimskip gefur viðskiptamanni sölupöntunarnúmer þegar búið er að skila inn flutningsfyrirmælum, innihaldslista og frumriti af tollafgreiðslupappírum.

6. Pökkun
Áður en búslóð er sótt af Eimskip/ Viðskiptamaður skilar búslóð til Eimskips þarf að ganga úr skugga um að öllum hlutum sé tryggilega pakkað og þeir merktir. Það er á ábyrgð eiganda búslóðarinnar að pakka öllu vel. Vinsamlega merkið allar einingar vel. Eimskip getur annast pökkun á búslóð með aðstoð þriðja aðila sé þess óskað og þarf að greiða sérstaklega fyrir þá þjónustu.

7. Skilatími

Skilatími í flutning

FCL/Heilgámur

LCL/Lausavara

Árósar

Fimmtudagur 18:00

Föstudagur 12:00

Helsingborg

Miðvikudagur 20:00

Þriðjudagur 15:00

Rotterdam

Föstudagur 12:00

Mánudagur 15:00

Fredrikstad

Miðvikudagur 10:00

Þriðjudagur 13:00

Hamborg

Mánudagur 12:00

Föstudagur 10:00

Immingham

Miðvikudagur 17:00

Miðvikudagur 15:00

Boston*

Föstudagur 12:00

Fimmtudagur 12:00

Richmond*

Þriðjudagur 16:00

Mánudagur 12:00

* Skip fara frá Bandaríkjunum til Íslands einu sinni í mánuði.


8. Greiðslufyrirkomulag

Greiða þarf flutningsgjald áður en sending fer frá landinu. Hægt er að greiða með símgreiðslu (kreditkort), millifærslu á bankareikning Eimskips eða greiða greiðsluseðil sem berst í heimabanka viðskiptavinar.

Reikningur: 0111-26-2914
kt: 421104-3520
IBAN: IS83 0111 2600 2914
Swift code: NBIIISR

9. Ábyrgð

Það er ábyrgð eiganda búslóðar að fylgjast með komu skips og hafa samband við skrifstofu til að taka lokaskrefin í flutningsferlinu, vegna tollafgreiðslu og afhendingar.Búslóðir eru ekki fluttar áfram frá Eimskip til áfangastaðar fyrr en viðskiptavinur hefur sett sig í samband við skrifstofu í viðkomandi landi. Gera má ráð fyrir um fimm virkum dögum í afgreiðslu búslóðar.

Áður en búslóð fæst afhent þarf eigandi eða umboðsaðili eiganda að fylla út og skila tollskýrslu og yfirlýsingu til viðkomandi Tollstjóraembættis . Ekki er leyfilegt að skrá búslóð á fyrirtæki í flutningi til landsins.

10. Tollareglur
Athugið að ef um tollskyldan varning er að ræða í búslóðum þarf að fylla út E1 tollskýrslu. Nauðsynlegt er að hafa kvittanir fyrir öllum vörum sem keyptar hafa verið. Tollskyldur varningur er til dæmis allt áfengi og hlutir sem fólk hefur verslað erlendis innan við ári fyrir heimflutning. Bent er á heimasíðu Tollstjóraembættisins í sambandi við þetta. Greiða þarf sérstaklega fyrir slíka skýrslu, sem er gerð af tollskjaladeild Eimskips.

11. Tollafgreiðsla

Tollstjóraembættið getur tekið sér allt frá einum degi upp í nokkra daga til að skoða búslóðasendingar, og ákveða hvort nánari skoðunnar sé krafist. Þegar tollskýrslan hefur fengið afgreiðslustimpil er hægt að koma til gjaldkera eða búslóðafulltrúa á skrifstofu Eimskips til þess að fá afhendingarheimild

12. Gámaleiga og geymslugjöld
Ef búslóð sem flutt er sem heilgámur er lengur en 5 daga hjá okkur eftir að skip kemur að landi, þarf að greiða svæðisgjöld. Að 8 dögum liðnum reiknast gámaleiga daglega þar til gámur er afhentur. Ef búslóð er flutt sem lausavara þá reiknast geymslugjöld ef hún er ekki sótt innan fjögurra daga.

Til að fá tilboð í búslóðaflutning, smellið hér.

Vonandi nýtast þessir punktar ykkur vel þegar skipuleggja á flutning til Íslands. Ef þið hafið frekari spurningar þá endilega hafið samband við búslóðadeild okkar í síma 525 7550 eða tölvupóstinn buslodir@eimskip.is

Við bendum fólki á að kynna sér vel heimasíðu Tollstjóraembættisins, þar sem hægt er að nálgast búslóðaryfirlýsingu með því að smella hér. Búslóðaryfirlýsingu er nauðsynlegt að fylla út til að hægt sé að tollafgreiða búslóðina.