Easy - Upplýsingavefur

Easy er þjónustuvettvangur á netinu fyrir viðskiptavini Eimskips. Þar geta viðskiptavinir félagsins nálgast veigamiklar upplýsingar í þægilegu viðskiptaumhverfi Eimskips. Njóttu þess að hafa frían aðgang að okkar víðtæka upplýsingakerfi 24 tíma á sólarhring.

Innskráning í Easy er hér, eða með því að smella á Easy-merkið í vinstra horni síðunnar.

Í Easy er hægt að:

  • Skoða stöðu sendinga, bókana, reikninga og akstursbeiðna
  • Bóka flutning
  • Skoða farmbréf og tilkynningar
  • Leggja fram þjónustubeiðnir
  • Fylgjast með stöðu þjónustubeiðna
  • Skoða reikningsstöðu
  • Gerast áskrifendur að þjónustutilkynningum

Viðskiptaþjónusta Eimskips veitir nánari upplýsingar um Easy. Til að fá lykilorð þarf að ganga frá samningi við Eimskip um notkun. Hægt er að nálgast samningsformið hér.

Heimahöfnin er eldri þjónustuvettvangur Eimskips, sem enn þjónar sendingum til og frá Færeyjum. Hægt er að skrá sig inn á Heimahöfnina með því að smella hér eða á Heimahafnarmerkið hér til hliðar.

Nánari upplýsingar veita starfsmenn viðskiptaþjónustu í síma 525 7800 eða í gegnum tölvupóst á cci@eimskip.is