
Vöruhótel Eimskips býður upp á vöruhýsingu.
Starfsmenn Vöruhótelsins búa yfir áralangri reynslu á vöruhýsingu en allt frá árinu 1994 hefur Vöruhótelið boðið upp á þessa þjónustu. Vöruhúsaþjónustu skiptist í vöruhýsingu í tollvörugeymslu eða tollafgreiddu svæði.
Vöruhótel Eimskips þjónar fjölbreytilegum hópi viðskiptavina stórum sem smáum og hýsir vöru af öllum stærðum og gerðum.
Í Vöruhótelinu er pláss fyrir yfir 21.000 bretti auk þess sem þar eru 23.000 hólf fyrir smávöru. Einnig hefur Vöruhótelið til umráða stór útisvæði ástamt kæli- og frystigeymslum.
Fyrirtæki sem nýta sér Vöruhótel Eimskips hafa bætt greiðsluflæði sitt með lækkun lagerkostnaðar, betra vöruflæði og bættri þjónustu við viðskiptavini.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 525 7600 eða sendið fyrirspurnir á netfangið vh@eimskip.is
Sjá bæklinga um Vöruhótelið (.pdf útgáfa í fullri upplausn )
• Vöruhótelsþjónusta
• Vörudreifing
• Tollvörugeymsla