Fjarðarfrost
Fjarðarfrost er frystigeymsla sem staðsett er á athafnasvæði Eimskips í Hafnarfirði. Fjarðarfrost er 3.000 bretta geymsla, sniðin að þörfum útflytjenda frystra sjávarafurða.
Þar er fullkomin skoðunarstofa þar sem viðskiptavinir geta unnið við skoðun og sýnatökur. Fjarðarfrost býr yfir fullkomnu upplýsingakerfi og hefur yfir að ráða starfsfólki með mikla reynslu og yfirgripsmikla þekkingu á meðhöndlun frystivöru.
Til að tryggja gæði vörunnar fer öll meðhöndlun hennar fram innandyra í lokuðu forrými fyrir framan frystiklefann. Fjarðarfrost er opið frá kl. 08:00 - 16:00 alla virka daga. Skoðunarstofan er opin eftir þörfum og er tekið á móti pöntunum og veittar allar nánari upplýsingar um Fjarðarfrost í síma 525-7940.