Fréttalisti

14.10.2009

Eimskip Flytjandi lækkar verðskrá sína til norðanverðra Vestfjarða

Eimskip óskar Vestfirðingum hjartanlega til hamingju með bættar vegasamgöngur til norðanverðra Vestfjarða.  Nýr og endurbættur vegur um Arnkötludal á milli Steingrímsfjarðar og Króksfjarðar verður formlega tekinn í notkun í dag, miðvikudaginn 14. október.  Þessar vegabætur þýða að nú er loks hægt að aka á bundnu slitlagi alla leið á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar.    

Til að fagna þessum tímamótum í samgöngusögu Vestfjarða hefur Eimskip Flytjandi ákveðið að lækka verðskrá sína til svæðisins um 8% frá og með 1. nóvember næstkomandi og hvetur jafnframt samgönguráðherra til enn frekari vegabóta á Vestfjörðum.

Nánari upplýsingar veitir:
Guðmundur Nikulásson framkvæmdastjóri innanlandssviðs Eimskips, sími: 825 7702
Hafþór Halldórsson svæðisstjóri Eimskips Ísafjörður, sími: 825 7081

Til baka