Flutningstilkynningar í tölvupósti

Viðskiptamenn Eimskips geta nú fengið ýmsar tilkynningar sendar í tölvupósti.

1. Áskrift að tilkynningum í tölvupósti
Senda þarf tölvupóst á cci@eimskip.is frá því netfangi sem senda á tilkynningu á. Fram þarf að koma nafn fyrirtækis, sími, fax, nafn tengiliðar og netfang tengiliðar. Eimskip mun hafa samband innan 24 klst. til að staðfesta áskriftina. Áskrift að tilkynningum í tölvupósti tekur yfir faxáskrift (ef fyrir hendi).


2. Tilkynning í tölvupósti þegar vara er komin í hillu
Senda þarf tölvupóst á cci@eimskip.is frá því netfangi sem senda á tilkynningu á. Fram þarf að koma nafn fyrirtækis, sími, nafn tengiliðar, netfang tengiliðar og það netfang sem á að senda tilkynninguna á. Við munum hafa samband innan 24 klst. til að staðfesta áskriftina.

Þess má geta að ofangreindar og fleiri áskriftir eru aðgengilegar fyrir notendur Easy - þjónustusvæðis Eimskips þar sem þeir geta sjálfir stýrt áskriftum og upplýsingum úr kerfum Eimskips.

Til að geta opnað tilkynningu frá Eimskip þarf að hafa aðgang að Acrobat Reader 3.0 eða nýrri útgáfu.

Til baka