Birgðahaldsþjónusta
Boðið er upp á hverskyns birgðahaldsþjónustu, bæði fyrir almenna vöru og sérhæfðan varning. Um er að ræða bæði tollafgreidda vöru og vöru sem ekki hefur verið tollafgreidd.
Vöruhótelið annast geymsluþjónustu fyrir Eimskip á höfuðborgarsvæðinu. Þar er viðskiptavinum boðið að geyma vörur við bestu skilyrði. Í vöruhúsinu er hitastig um 14°C sem er kjörhiti fyrir flestar tegundir þurrvöru. Þá er auk þess boðið upp á geymslu á kæli- og frystivöru og geymslu á vöktuðu og afgirtu útisvæði sé þess óskað. Eimskip starfrækir einnig birgðahalds- og vörudreifingarþjónustu í Oddeyrarskála á Akureyri.
Nánari upplýsingar eru veittar í viðskiptaþjónustu í síma 525-7800 eða hjá Vöruhótelinu í síma 525-7605.
Utan Íslands
Eimskip býður geymsluþjónustu erlendis, ýmist í tengslum við eigin vöruhús eða í samstarfi við sérhæfð fyrirtæki á þessu sviði. Í þessari þjónustu felst það að taka við vöru, meðhöndla hana með ýmsum hætti, s.s. endurpakka, merkja eða setja saman. Boðið er upp á geymslu til lengri eða skemmri tíma, dreifingarþjónustu og alla nauðsynlega pappísvinnu.
Hægt er að afla nánari upplýsinga hjá skrifstofum erlendis og umboðsmönnum.