30.11.2007
Herjólfur í slipp í næstu viku
Í næstu viku er ráðgert að Herjólfur fari í slipp í tvo sólahringa í nauðsynlegt viðhald vegna bilaðrar pakkningar við skrúfuás. Eftir komu Herjólfs til Þorlákshafnar frá Vestmannaeyjum á hádegi n.k. þriðjudag, 4. desember mun hann halda áfram til Hafnarfjarðar þar sem hann verður tekinn í slipp. Að öllu óbreyttu verður Herjólfur farinn að sigla eftir áætlun frá Þorlákshöfn á hádegi n.k. föstudag 7. desember.
Hægt verður að koma vöru frá Reykjavík til Vestmannaeyjum með M/S Selfossi. Varan þarf að koma inn á afgreiðslu Eimskips fyrir klukkan 16:00 n.k. miðvikudag 5. desember. Selfoss verður síðan í Vestmannaeyjum n.k. fimmtudagsmorgun 6. desember.
Til baka