12.07.2010
Benedikt Lafleur syndir frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja
Ef veður og vindar leyfa hyggst Benedikt Lafleur stinga sér til sunds frá Bakkafjöru að morgni sunnudagsins 18. júlí nk. og synda yfir til Eyja.
Með þessu er ætlunin að vekja athygli á nýrri siglingaleið á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja sem opnuð verður 21. júlí nk.
Eftir að nýja siglingaleiðin verður tekin í notkun verða daglega allt að sex ferðir á milli Vestmannaeyja og meginlandsins og því engin þörf á að leggjast til sunds. Áætlað er að Benedikt verði sex til átta klukkustundir á sundinu.
Herjólfsferð á milli Lands og Eyja mun framvegis taka rúmlega hálfa klukkustund.
Björgunarfélag Vestmannaeyja mun fylgja Benedikt á meðan á sundinu stendur. Hann hyggst synda af stað frá Landeyjahöfn upp úr kl. 10.30 að morgni sunnudags og koma að landi við Eiðið í Vestmannaeyjum síðdegis.
Til baka