Herjólfur
Tölulegar upplýsingar:
Skipið er 3.354 brúttótonn að stærð. Lengd þess er 70,5 metrar og breidd þess 16 metrar. Skipið hefur tvær aðalvélar en hvor þeirra er 2.700 KW. Ganghraði skipsins eru 17 sjómílur, sem þýðir að það tekur um 40 mínútur að sigla á milli Vestamannaeyja og Landeyjahafnar. Í skipinu komast fyrir 500 farþegar í hverri ferð og 60 fólksbílar.
Skipið er mjög vel búið af siglingatækjum og björgunarbúnaði samkvæmt alþjóðlegum SOLAS kröfum.
Aðstaða um borð:
Í skipinu eru þrír aðalsalir: Matsalur, sjónvarpssalur og setustofa. Í matsalnum er kaffitería þar sem boðið er upp á heitan mat, smurt brauð, sælgæti, kökur, kaffi og aðra drykki. Salurinn rúmar um 130 manns í sæti en í sjónvarpssalnum eru rúmlega 80 þægileg sæti sem hægt er að stilla eftir smekk hvers og eins. Setustofan er útbúin þægilegum sófastólum og borðum en einnig eru sófar og bekkir víðsvegar um skipið. Í Herjólfi eru tvær barnastofur, önnur með leikföngum en hin með sjónvarpsefni. Á þilfari eru bekkir fyrir þá sem kjósa að njóta útsýnisins og ferska sjávarloftsins á meðan á ferðinni stendur.