Sjóveiki
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu - kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
- Góð hvíld daginn fyrir brottför
- Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
- Forðist djúpsteiktan og brasaðan mat
- Borðið góðan morgunverð en forðist kaffi
- Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þið finnið fyrir ógleði
- Forðist það að lesa (augun senda boð um að við séum í kyrrstöðu en líkaminn sendir boð um hreyfingu)
- Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
- Postafen – fæst án lyfseðils
- Koffínátín – fæst án lyfseðils
- Scopolamin plástur - lyfseðilsskylt
Önnur ráð:
Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur neðarlega í skipinu.
Gott er að liggja útaf.
Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að fara út á dekk og láta vindinn leika um sig.
Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki.