Á Íslandi

Eimskip býður viðskiptavinum sínum aðgang að þremur kæli- og frystigeymslum á Íslandi.  Sundafrost og Sundakælir í Reykjavík og Fjarðarfrost í Hafnarfirði.  Til að fá frekari upplýsingar um geymslurnar er hægt að smella á nafn viðkomandi geymslu hér að neðan.

Fjarðarfrost

Sundafrost

Sundakælir

Viðskiptaþjónusta Eimskips er ávallt reiðubúin að veita upplýsingar og aðstoða.  Hafðu samband með því að hringja í síma 525 7800

Erlendis

Eimskip býður margvíslega þjónustu fyrir kæli- og frystivörur.  Þjónustan er veitt í Færeyjum, Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Bretlandi, Þýskalandi, Hollandi, Spáni, Kína, Kanada, Bandaríkjunum og mörgum öðrum löndum.

Í byrjun árs 2004 keypti Eimskip meirihluta í CTG, fyrirtæki sem býður ítarlega flutninga- og geymslu þjónustu fyrir fiskiðnaðinn í Noregi.  Árið 2005 eignaðist Eimskip CTG að fullu.  Fyrirtækið rekur kæli- og frystiskip sem sigla til Bretlands, meginlands Evrópu, Spánar, Portúgals og Eystrasaltslandanna.

Til að fá frekari upplýsingar um kæli- og frystigeymslu í ákveðnu landi þarf að hafa samband við starfsmenn Eimskips á einni af erlendu skrifstofum okkar.