Vörudreifingarþjónusta

Á Íslandi

Eimskip býður í samstarfi við Flytjanda upp á öfluga vörudreifingarþjónustu bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Boðið er upp á vörudreifingu sem sjálfstæða þjónustu eða sem hluta af birgðahaldsþjónustu. Eimskip tekur að sér að sækja vöruna á lager viðskiptavinar og dreifa henni í verslanir og/eða heim að dyrum neytandans, hvort sem hann er staðsettur innan höfuðborgarsvæðisins eða á landsbyggðinni. Úthýsing vörudreifingar getur haft í för með sér umtalsverðan sparnað, bætta þjónustu og veitt aukinn sveigjanleika.

Nánari upplýsingar veitir Flytjandi í síma 525 7700

Viðskiptaþjónusta Eimskips er ávallt reiðubúin að veita upplýsingar og aðstoða.  Hafðu samband með því að hringja í síma 525 7800



Utan Íslands

Eimskip býður upp á þjónustu við að sækja eða senda, stórar sem smáar sendingar, um lengri eða skemmri vegalengdir.

Auk þess að dreifa eða sækja vörur sem flytjast eiga innan flutningakerfa Eimskips, getur t.d. verið um það að ræða að stórri sendingu sé komið fyrir í geymslu og Eimskip sjái síðan um að dreifa til margra aðila.

Einnig getur Eimskip séð um að safna saman vörum frá mörgum aðilum og sameina í stóra sendingu.