Flutningur á hættulegum varningi

Með öllum sendingum sem flytjast eiga með skipi og sem innihalda efni sem flokkast sem hættuleg samkvæmt reglum Alþjóða Siglingamálastofnunarinnar (IMO), þ.e svonefndum IMDG reglum skal fylgja eyðublað með yfirlýsingu um hættulegan varning. Sama gildir um “tómar” umbúðir undan slíkum efnum sem ekki hafa verið hreinsaðar með viðurkenndum aðferðum. Nánari upplýsingar um útfyllingu eyðublaðsins og aðra meðhöndlun hættulegs varnings í flutningi má frá hjá Eyþóri H. Ólafssyni í síma 525 7101 eða með tölvupósti á eho@eimskip.is.

Eyðublaðið skal fylgja með sendingunni til Eimskips, útfyllt og undirritað. Sé um heilgám eða tankgáma að ræða er nauðsynlegt að númer gámsins eða tanksins komi fram í viðeigandi reit. Sjái starfsmenn Eimskips um að lesta gáminn þurfa þeir að fá frumrit skýrslunnar með vörunni og klára síðan að setja inn það sem á vantar.

Hér má nálgast eyðublað með yfirlýsingu um hættulegan varning.