Texti um FAQ í búslóðum!
Texti um FAQ í búslóðum!
Spurningar og svör
Hvað merkir ETA , ETS og ETD?
ETA=Estimated time of arrival, ETS=Estimated time of shipping, ETD=Estimated time of departure.
Hvað komast margir pallar í 40 feta þurrgám?
24 EUR-pallar og 22 ISO-pallar.
Hvað er átt við því þegar talað er um hitastýrðan gám?
Gámur til að flytja varning sem krefst þess að vera í ákveðnu hitastigi á meðan flutningur fer fram t.d. -24°c, 4°c og 0°c og allt eftir því sem viðskiptavinurinn óskar eftir.
Hvað er ATA carnet?
Skírteini sem heimilar tímabundinn inn- og útflutning á sýnishornum og kynningarvörum.
Hvað komast mörg Eurobretti (0,8m x 1,2m) í 20 ft. hitastilltan gám?
10 bretti.
Eru kæligámar aðeins pantaðir fyrir frosna matvöru?
Meira lýsandi væri að kalla þessa gáma hitastillta gáma frekar en kæli- eða frystigáma. Það er vegna þess að t.d. á veturna getur verið nauðsynlegt að flytja matvöru og annan farm sem ekki má frjósa, á jöfnu hitastigi alla leið, t.d. við stofuhita.
Hvernig er greiðslufyrirkomulagi háttað?
Eimskip sendir út greiðsluseðla sem hægt er að greiða í heimabanka og öllum bönkum og sparisjóðum. Ef viðskiptavinur vill að Eimskip flytji vöru til sín, er æskilegt að hringja í viðskiptaþjónustu og fá gjaldkera til þess að bóka aksturinn. Gjaldkeri gefur svo viðskiptavini upp rétta upphæð og greiðsluseðlanúmer.
Er hægt að láta dreifa vörum sínum frá vöruhótelinu beint til viðskiptavina?
Já, við dreifum vörum um allt höfuðborgarsvæðið og út á land eftir óskum viðskiptavina.
Hvað tekur 20 feta gámur mörg EURO-bretti?
Hægt er að raða 11 EUR brettum á gólfið í 20 feta gám.
Hvað eru til margar stærðir af gámum?
Það eru til 2 stærðir, 20 feta og 40 feta. Einnig eru til fleti, hálfgámar, há-gámar, tankgámar, hestagámar o.s.frv.
Hvað er farmbréf?
Viðskiptabréf sem gengur kaupum og sölum. Sá einn er réttmætur eigandi vörunnar sem framvísar farmbréfi við móttöku. Ekki má afhenda vöru án framvísunar á farmbréfi.
Hvað komast mörg Eurobretti (0,8m x 1,2m) í 40 ft. þurrgám?
24 bretti.
Hvaða upplýsingar verð ég að hafa til að geta beðið um verðtilboð?
Stærð vöru (l x b x h), þyngd, fjölda bretta, nákvæmt heimilisfang (a.m.k. póstnúmer og borg), söluskilmála (FOB, FAS, EXW eða hverjir sem skilmálarnir eru), hvaða var það er sem send er o.fl.
Hvenær leggjast geymslugjöld á sendingar?
Allar sendingar geta verið á geymslusvæði Eimskips í 4 daga frá komu skips til Íslands án þess að geymslugjöld leggist á þær. Viðskiptavinir geta leitað til viðskiptaþjónustu í síma 525 7800 til að fá upplýsingar um upphæð geymslugjalda.