Tollvörugeymsla
Vöruhótelið starfrækir tollvörugeymslu. Þar geta fyrirtæki geymt ótollafgreidda vöru eins lengi og óskað er. Ekki þarf að greiða tollgjöld og virðisaukaskatt fyrr en varan er leyst út.
Í tollvörugeymslunni er hagkvæmt að geyma
• vöru sem bera há tollagjöld
• vöru sem er flutt til landsins með erlendum gámum sem bera háa gámaleigu
• vöru sem erlendur birgi á
Fyrirtæki hafa náð að lækka kostnað vegna dýrra erlenda leigugáma með því að hýsa vöru inn á Vöruhótelinu. Einnig hafa fyrirtæki samið við birgja um að erlendur birgi eigi vöruna en íslenski innflytjandi taki inn vöru eftir þörfum. Hýsing á Vöruhóteli tryggir slíka eignaskiptingu.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 525 7600 eða sendið fyrirspurnir á netfangið vh@eimskip.is