Nafn félagsins:
Félagið heitir Eimskipafélag Íslands en vinnuheiti þess er Eimskip. Rétt fallbeyging nafnsins er eftirfarandi:
nf. Eimskip
þf. Eimskip
þgf. Eimskip
ef. Eimskips
Merki félagsins:
Grunneining merkisins er bókstafurinn E sem vísar í heiti fyrirtækisins. Í merkinu eru tvö E sem tengjast saman og mynda tákn fyrir gagnvirk tengsl. Viðskiptatengsl þar sem þjónusta fyrirtækisins og þarfir viðskiptavina falla þétt saman. Þetta er merki þjónustusinnaðs fyrirtækis.
Blái liturinn stendur fyrir Ísland og grundvallartengingu við hafið, á meðan grái/silfraði liturinn stendur fyrir verðmæti, þ.e. verðmætasköpun Eimskips og viðskiptavina þess.
Gæta verður þess vel að breyta ekki hlutföllum merkisins. Þeir aðilar sem nýta merkið eru vinsamlegast beðnir um að kynna sér reglur um það.
Smellið hér til að opna merki Eimskips, eða hafið samband við Kynningar- og Markaðsdeild með því að smella hér.