Eimskip Flytjandi rekur öflugasta þjónustunetið í flutningum á Íslandi. Að netinu standa, auk Eimskip Flytjanda, sjálfstæðir flutningsaðilar sem veita samræmda flutningaþjónustu á Íslandi.
Miðstöð Flytjenda er við Klettagarða 15 í Reykjavík, auk þess sem þjónustumiðstöðvar fyrirtækisins starfa í öllum landshlutum, með um 80 afgreiðslustaði um land allt.
Heimasíða Eimskip Flytjanda
TVG-Zimsen varð til við samruna Tollvörugeymslunnar hf. og Skipaafgreiðslu Jez Zimsen árið 1996, en síðarnefnda fyrirtækið rekur rætur sínar allt aftur til ársins 1894. TVG er fyrst og fremst fyrirtæki í flutningsmiðlun, og einbeitir sér að sjófrakt, flugfrakt og skjalagerð.
TVG-Zimsen býður einnig upp á sérhæfðari þjónustu, og starfrækir til dæmis sérstaka deild sem býður upp á flutning listaverka og hefur í nokkru mæli flutt inn búnað til tónleikahalds undanfarin ár.
Heimasíða TVG
CTG (Coldstore & Transport Group) er fyrirtæki sem rekur skipaflota og vörugeymslur sem sérhæfa sig í flutningi á hitastýrðum vörum. Fyrirtækið meðhöndlar slíkar vörur, geymir þær og flytur víða um heim með frystiskipaflota sínum, sem er sá yngsti í heiminum.
Árið 2004 eignaðist Eimskip meirihluta í CTG og árið 2005 eignaðist Eimskip 100% hlut í fyrirtækinu. Í nóvember 2005 var rekstur CTG og Eimskips í Noregi sameinaður undir nafninu Eimskip-CTG.
Aðalskrifstofa Eimskip-CTG er í Sortland í Noregi en fjórar skrifstofur eru reknar þar í landi. Auk Sortland skrifstofunnar er Eimskip-CTG með skrifstofur í Tromsö, Fredrikstad og Aalesund.
Heimasíða Eimskip-CTG
Faroe Ship er elsta og stærsta flutningafyrirtæki Færeyja. Fyrirtækið var stofnað árið 1919 eða fimm árum eftir að Eimskip var stofnað.
Faroe Ship varð dótturfélag Eimskips árið 2004, auk þess sem rekstur félagsins í Færeyjum var styrktur með kaupum flutningsfyrirtækjunum Heri Thomsen (árið 2005) og Farmaleiðir (2006). Frá árinu 2007 hafa öll félögin þrjú verið rekin undir sameiginlegu nafni Faroe Ships.
Heimasíða Faroe Ship