Markmið
Eimskip veitir viðskiptavinum sínum alhliða flutningaþjónustu sem byggir á áreiðanlegu og skilvirku siglingakerfi á Norður-Atlantshafssvæðinu og frystiflutningsmiðlun um allan heim, og myndar með því trausta og órjúfanlega keðju flutninga frá sendanda til móttakanda.
Sameiginlegt markmið starfsmanna er að gera Eimskip að framúrskarandi þjónustufyrirtæki á flutningamarkaðnum sem endurspeglast af því að:
- Eimskip veitir framúrskarandi þjónustu og hefur hagsmuni viðskiptavina ætíð að leiðarljósi
- Eimskip býr starfsmönnum sínum skapandi og þroskandi vinnuumhverfi sem einkennist af heilbrigðum metnaði og gleði
- Eimskip starfar af fullri ábyrgð gagnvart samfélaginu og er fyrirmynd annarra á því sviði
- Eimskip skapar raunveruleg verðmæti í starfsemi sinni með hagkvæman rekstur og arðsemi að leiðarljósi