Vinnustaðurinn

Hjá Eimskip starfar úrvalshópur sem hefur gildi fyrirtækisins, ÁRANGUR - SAMSTARF - TRAUST, að leiðarljósi.

Starfsfólk Eimskips, þekking þess og færni, er mikilvægasta auðlind félagsins. Hópurinn samanstendur af ólíkum einstaklingum sem sinna mismunandi störfum og búa að ólíkri reynslu og þekkingu. Með sameiginlegum gildum stillum við saman strengi, byggjum öflugt fyrirtæki og skemmtilegan og eftirsóknarverðan vinnustað.

Eimskip starfar í alþjóðlegu umhverfi og rekur nú starfsstöðvar í 15 löndum utan Íslands. Á Íslandi eru 13 starfsstöðvar sem sinna flutningatengdri þjónustu með um 750 starfsmenn, en heildarfjöldi starfsmanna Eimskips eru um 1500. Áhersla er lögð á að starfsfólk hafi tækifæri til aukins þroska, framlag þess sé metið að verðleikum og vinnuumhverfi stuðli að velferð starfsfólks ásamt því að leggja grunninn að velgengni fyrirtækisins.

Eimskip hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á sviði starfsmannamála;

  • Starfsmenntaverðlaun Íslands 2003
  • Verðlaun Evrópubandalagsins vegna evrópsks samstarfsverkefnis á sviði andlegrar heilsueflingar árið 2003
  • Verðlaun Evrópubandalagsins vegna árangurs á sviði heilsueflingar á vinnustað árið 1999