Ekkert fannst.
Við bjóðum viðskiptavinum okkar fjölbreytta vöruhúsaþjónustu fyrir stórar og smáar sendingar.
Vöruhúsaþjónusta okkar býður hýsingu fyrir hinar ýmsu vörutegundir, þurrvöru, ferska eða frosna.
Við starfrækjum frísvæði (tollvörugeymslu) í vöruhúsum okkar í Reykjavík og í Hafnarfirði. Þar geta fyrirtæki geymt ótollafgreidda vöru eins lengi og óskað er.
Í Hafnarfirði er boðið uppá fyrsta flokks löndunarþjónustu og einnig margvíslega hliðarþjónustu. Í boði er meðal annars losun og lestun á ferskfiski og frystum afurðum úr frystitogurum.
Við bjóðum viðskiptavinum okkar að úthýsa lagerstarfsemi sinni að hluta til eða að fullu.
Hér má finna vöruhúsavísitöluna sem er sett saman úr launavísitölu og byggingarvísitölu.