Á þjónustuvef Eimskips eru ýmsar aðgerðir sem nýtast vel í daglegum fyrirtækjarekstri. Þú getur sparað þér tíma og fengið aukna yfirsýn yfir sendinguna þína.
Hafa yfirlit yfir inn-og útflutningssendingar með afar einföldum hætti
Senda Eimskip þjónustubeiðnir og fylgjast með framgangi þeirra
Senda Eimskip bókunar- og flutningsfyrirmæli
Skrá fylgibréf vegna innanlandsflutninga
Gera pantanir og sjá birgðastöðu á Vöruhótelinu
Ná í ýmis fylgigögn eins og reikninga og farmbréf
Taka út ýmis yfirlit og færa yfir í Excel
Horfðu á kynningarmyndband um þjónustuvefinn
Nánari upplýsingar um aðgang og notkun þjónustuvefs Eimskips er hægt að fá hjá þjónustufulltrúum okkar í síma 525 7000 eða á netföngin service@eimskip.is vegna millilandasendinga, innanlands@eimskip.is vegna innanlandssendinga og vh@eimskip.is vegna vöru í geymsluþjónustu á Vöruhótelinu.