Fara á efnissvæði

Vegna gríðarlegrar hækkunar á eldsneytisverði undanfarna daga og vikur, sem tengist áframhaldandi átökum í Miðausturlöndum, mun Eimskip innleiða tímabundið neyðarálag (Emergency Fuel Surcharge – EFS) á akstur á Íslandi. Þetta úrræði er nauðsynlegt til að mæta verulega hækkuðum kostnaði við eldsneytiskaup sem hefur áhrif á reksturinn næstu vikurnar.
 
Neyðarálag vegna hækkunar olíuverðs:
1,5% af flutningsgjaldi 
 
Þetta neyðarálag gildir frá 25. mars og leggst á allan flutning frá og með þeim degi. Gjaldið verður endurmetið 1. og 15. dag mánaðar á meðan ástandið varir. Við vekjum athygli á því að á gildistíma neyðarálagsins mun almennt olíuálag ekki taka breytingum.

Við kunnum að meta skilning þinn og samstarf á þessum óstöðugu tímum. Ef þú hefur einhverjar spurningar, vinsamlegast hafðu samband við Viðskiptaþjónustu innanlandsflutninga, innanlands@eimskip.is, 525 7700.