Fara á efnissvæði

Styrktarstefna

Styrktarstefna Eimskips endurspeglar markmið félagsins í sjálfbærni, jafnrétti, ábyrgum rekstri og góðum viðskiptaháttum. Við leggjum ríka áherslu á að styrkja málefni sem gagnast samfélaginu og styðst félagið við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um jafnrétti kynjanna, aðgerðir í loftlagsmálum og líf í vatni við val á verkefnum. Við erum stolt af þeim verkefnum sem við leggjum lið og leitum ávallt nýrra leiða til að auka hagsæld og velferð í samfélaginu.

Megináherslur

  • Stuðla að öryggi og forvörnum, hvort sem er í leik eða starfi

  • Stuðla að verndun umhverfis á landi og sjó og minnka kolefnisspor félagsins

  • Stuðla að eflingu íþrótta- og æskulýðsstarfs í landinu

  • Styðja við íslenskt menningarlíf og listir

Helstu styrktarverkefni Eimskips:

  • KSÍ – Knattspyrnusamband Íslands. Eimskip er bakhjarl landsliða Íslands og leggur sitt af mörkum til að efla aðstöðu og umgjörð á Laugardalsvelli.

  • Hjálmaverkefni í samstarfi við Kiwanis. Síðan 2004 hafa Eimskip og Kiwanis gefið öllum börnum í fyrsta bekk á Íslandi nýjan hjálm á vorin og þannig stuðlað að auknu öryggi þeirra í umferðinni.

  • Landsbjörg Eimskip er einn af aðalstyrktaraðilum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

  • Vesturport. Eimskip er einn af aðalstyrktaraðilum leikhópsins Vesturport.

  • Auk þess styður Eimskip fjölmörg íslensk íþróttafélög og verkefni á sviði menningar, lista og umhverfisverndar.