Fara á efnissvæði

Nýr þjónustuvefur Eimskips

Eimskip er að taka upp nýjan þjónustuvef, myEimskip, sem mun á næstunni koma í stað ePORT. Meðan á yfirfærslu stendur getur þurft að nota báða vefina, allt eftir sendingategundum og þjónustu.

Meðan á innleiðingu stendur verða tveir vefir í notkun:

  • myEimskip tekur við sendingum með númer sem hefst á „L". Þar getur þú meðal annars sent inn tilboðsbeiðnir, fylgst með sendingum, skoðað reikninga, sent inn þjónustubeiðnir fyrir tollafgreiðslu og heimakeyrslu, og skoðað yfirlit yfir gámaleigu og svæðisgjöld.
  • ePORT er áfram notað fyrir bókanir og flutningsfyrirmæli til og með 25. maí (vika 22), ásamt þjónustubeiðnum og yfirliti fyrir innanlandsakstur og vöruhúsaþjónustu.
     

Hvað er aðgengilegt í myEimskip? (Fyrir sendingar sem hefjast á L geta viðskiptavinir)

  • Sent inn tilboðsbeiðnir og séð yfirlit yfir tilboð
  • Séð yfirlit yfir sendingar og reikninga
  • Rakið sendingar
  • Sent inn þjónustubeiðnir fyrir tollafgreiðslu og heimakstri
  • Skoðað yfirlit gámaleigu og svæðisgjalda

Fyrir viðskiptavini Eimskip innanlands

ePORT mun áfram styðja við innlenda flutninga og vörugeymsluþjónustu fram til 2027. Viðskiptavinir verða upplýstir tímanlega þegar yfirfærslan í myEimskip á sér stað.

Hefjast handa

Hægt er að sækja um aðgang að myEimskip hér:

Þarftu aðstoð?

Sölu- og þjónustuteymi okkar er til staðar til að aðstoða þig. Vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Eimskip á þínu svæði.

Nánari upplýsingar um aðgang og notkun þjónustuvefs Eimskips er hægt að fá hjá þjónustufulltrúum okkar í síma 525 7000 eða á netföngin service@eimskip.is vegna millilandasendinga, innanlands@eimskip.is vegna innanlandssendinga og vh@eimskip.is vegna vöru í geymsluþjónustu á Vöruhótelinu.