Yfir sjó og land til þín
Eimskip gegnir lykilhlutverki í að tengja Ísland við heiminn allt árið um kring. Í gegnum árin hefur Eimskip tryggt að jólagjafir, jólamatur og allt sem skapar hátíðlega stemmingu berist til landsmanna, sama hvort það sé frá nágrannalöndum eða fjarlægum heimshornum. Með áreiðanlegum flutningum og víðtækri þjónustu leggur Eimskip sitt af mörkum til að jólahátíðin verði eins og við þekkjum hana – full af gleði og samveru.
Við flytjum gjafir, nauðsynjar og nýjungar - yfir sjó og land til þín.