Fara á efnissvæði

Vikulegar strandsiglingar um land allt

Eimskip rekur sérhæft strandflutningakerfi sem tengir hafnir landsbyggðarinnar beint við millilandakerfið í Sundahöfn. Þjónustan veitir skilvirka, reglulega og hagkvæma flutningsleið fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem þurfa áreiðanlegar lausnir til að flytja vörur innanlands.

Viðkomustaðir

  • Norðurland og Vestfirðir: Húsavík, Akureyri, Sauðárkrókur, Ísafjörður
  • Austurland: Reyðarfjörður
  • Suðurland: Vestmannaeyjar

Hagkvæmur og umhverfisvænn flutningur

Strandsiglingar eru ákjósanlegur kostur fyrir fyrirtæki sem vilja flytja vörur með skilvirkum og vistvænum hætti. Með reglulegum ferðum er hægt að skipuleggja flutninga betur, lágmarka geymslukostnað og stytta afhendingartíma. Þessi lausn hentar sérstaklega vel fyrir iðnaðar- og byggingarvörur, frosnar sjávarafurðir og aðrar vörur sem ekki eru tímaháðar.

Testing