Ný stefna
Í janúar 2026 kynntum við nýjan kafla í sögu Eimskips þegar ný stefna félagsins var kynnt, eftir mikla stefnumótun og framlag frá starfsfólki um allan heim. Hún byggir á styrkleikum okkar en skerpir sýnina fram á við. Með henni styrkist tengingin milli áhersla til lengri tíma og þeirra ákvarðana sem við tökum í daglegum rekstri félagsins. Nýtt hlutverk félagsins, framtíðarsýn og gildi vísa okkur veginn hvernig við vinnum saman og sköpum virði fyrir viðskiptavini okkar og þau samfélög sem við störfum í.
Hlutverk: Okkar lausnir, þinn árangur
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi
Gildin okkar
Liðsheild
Við störfum saman sem ein liðsheild og fögnum góðum árangri saman
Við deilum reynslu og þekkingu og erum samstíga gagnvart viðskiptavininum
Framsækni
Við fögnum nýjum lausnum og bættum vinnubrögðum
Við tökum frumkvæði, erum hugrökk og forvitin
Áreiðanleiki
Við erum áreiðanleg og stöndum við það sem við segjum
Við tökum ábyrgð og erum traustsins verð
Virðing
Við sýnum samstarfsfólki, viðskiptavinum, samfélögum og umhverfinu virðingu
Við berum virðingu fyrir aðföngum sem við nýtum í starfsemi okkar
Framtíðarsýn: Tengjum samfélög, sköpum hagsæld
Framtíðarsýn okkar er að tengja samfélög og skapa hagsæld fyrir fólk og fyrirtæki
Þetta er Eimskip
Eimskip hefur verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914. Við rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.