Fara á efnissvæði

Árs- og sjálfbærniskýrsla Eimskips fyrir 2025 hefur verið birt. Skýrslan gefur heildstæða mynd af fyrirtækinu og veitir innsýn í fjölbreytta og umfangsmikla starfsemi Eimskips um allan heim ásamt því að draga fram helstu niðurstöður ársins og framvindu okkar í sjálfbærnimálum. 

Hópur fólks sem starfar á vegum félagsins um allan heim kom að gerð skýrslunnar og er hún samhent átak sem endurspeglar öfluga vinnu starfsfólks okkar allan ársins hring. 

Skýrslan er nú aðgengileg hér á vefnum okkar.