Fara á efnissvæði

Eimskip hefur selt dótturfélag sitt, Sæferðir ehf., ásamt skemmtiferðaskipinu Særúnu. Með sölunni lýkur þátttöku Eimskips í rekstri félagsins, en félagið hefur á undanförnum árum sinnt fjölbreyttum ferðaþjónustutengdum verkefnum í Stykkishólmi og á Breiðafirði.

Særún er tvíbytna sem tekur allt að 115 farþega og er útbúin veitingasal með sæti fyrir 98 manns. Undanfarin ár hefur Særún siglt skemmtisiglingar um Breiðafjörð þar sem gestir hafa notið fugla- og náttúruskoðunar í eyjaklasanum og fengið að bragða á nýveiddum skelfiski. Nýr eigandi, Siggeir Pétursson, hyggst halda rekstri félagsins áfram í Stykkishólmi og bjóða upp á sambærilegar ferðir í anda þeirrar starfsemi sem Sæferðir hafa byggt upp.

„Það er sérstaklega ánægjulegt að nýr eigandi, Siggeir Pétursson, er sonur Péturs Ágústssonar og Svanborgar Siggeirsdóttur, stofnenda Sæferða, og mun reksturinn því færast á ný í hendur fjölskyldunnar. Sæferðir hafa verið mikilvægur hluti af ferðaþjónustu á Vesturlandi um langt árabil og það gleður okkur að starfsemin fær að halda áfram í heimahöfn sinni í Stykkishólmi. Við hjá Eimskip óskum nýjum eiganda velfarnaðar í áframhaldandi uppbyggingu og starfi“ segir Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Sæferða.

Á myndinni má sjá skipið Særúnu á siglingu í Breiðafirði. Ljósmyndari: Haukur Páll.