Nýjar tengingar frá Vestmannaeyjum og Færeyjum við Rotterdam styrkir siglingarkerfi Eimskips
Frá og með 1. september mun Eimskip bæta við vikulegum viðkomum í Rotterdam í Hollandi á Gulu siglingaleiðinni. Með breytingunni opnast bein tenging frá Vestmannaeyjum og Tórshavn í Færeyjum til Rotterdam, auk þess sem Reyðarfjörður tengist í gegnum umlestun í Færeyjum.
Styður vaxandi laxeldi
Siglingatíminn til Rotterdam frá Austurlandi og Vestmannaeyjum er einungis um fjórir dagar, sem tryggir meðal annars afhendingu á mörkuðum í Frakklandi og Hollandi á þriðjudögum. Nýja tengingin eflir útflutning íslensks sjávarfangs, styður ört vaxandi laxeldi og bætir þjónustu við frystar og saltaðar afurðir.
Hraðari leið fyrir ferskmeti
„Viðbrögð viðskiptavina okkar hafa verið bæði góð og sterk, þeir sjá mikla möguleika í þessari tengingu sem styrkir ferskfisksflutninga til meginlands Evrópu. Þetta er jákvætt og framsækið skref í þróun þjónustu Eimskips og eflingu tengsla við Evrópska markaði í gegnum okkar áreiðanlega siglingarkerfi.“ Segir Björn Einarsson, framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptastýringar.
Fjórar áratugir í Rotterdam
Skrifstofa Eimskip í Rotterdam hefur starfað frá árinu 1985 og starfsfólkið þar býr yfir víðtækri reynslu í alhliða flutningsþjónustu, tollamálum og áframflutningi. Með þessari viðbót á Gulu leiðinni geta viðskiptavinir, eftir sem áður, treyst á framúrskarandi þjónustu og enn skilvirkari tengingar við lykilmarkaði á meginlandi Evrópu.
Allar upplýsingar um siglingaáætlun Eimskips má sjá á vef félagsins, www.eimskip.is.