Hulda Bjarnadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Menningar og miðlunar, nýrrar deildar á Mannauðs- og samskiptasviði Eimskips, þar sem málaflokkarnir menning, fræðsla, miðlun og markaðsmál eru sameinaðir undir sömu einingu. Sviðinu tilheyra auk þess mannauðsmál, launa- og kjaramál og samskipti.
„Með stofnun nýrrar deildar viljum við styrkja og samræma miðlun Eimskips, bæði inn á við til starfsfólks og út á við til viðskiptavina, samstarfsaðila og annarra hagaðila. Breytingin skapar aukin tækifæri á að tengja saman vinnustaðarmenningu, fræðslu, markaðs- og samskiptamál og styðja þannig við áframhaldandi þróun félagsins,“ segir Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs.
Hulda kom til Eimskips fyrir u.þ.b. ári síðan frá Marel þar sem hún stýrði umbreytingarverkefnum í alþjóðlegu umhverfi og hafði umsjón með fjölda verkefna á sviði mannauðs- og samskiptamála. Hún býr yfir víðtækri reynslu af fjölmiðlum, samskipta- og kynningarmálum og viðburðarhaldi.
Hulda er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, hefur lokið stjórnendaþjálfun í sjálfbærni frá Harvard T.H. Chan School of Public Health. Hún gegnir jafnframt hlutverki forseta Golfsambands Íslands.
„Ég hlakka til að styrkja samræmda og öfluga miðlun hjá Eimskip og taka virkan þátt í innleiðingu Eimskip 3.0 sem ég trúi að muni styrkja vinnustaðarmenningu félagsins. Með skýrum skilaboðum, jákvæðum samskiptum og sterkri liðsheild byggjum við upp vinnustaðarmenningu sem skapar árangur og tækifæri til vaxtar. Þannig heldur Eimskip áfram að styrkja stöðu sína sem leiðandi vinnustaður í alþjóðlegu umhverfi,” segir Hulda Bjarnadóttir.