Eimskip og Sjómannafélag Íslands hafa náð samkomulagi um að fresta boðuðu verkfalli hafnarverkafólks í Sundahöfn um sex vikur, það er til 26. maí næstkomandi. Verkfallið átti að hefjast 13. apríl.
Líkt og kom fram í tilkynningu Eimskips fyrr í vikunni þá hafa samningar á milli Eflingar stéttarfélags og Samtaka atvinnulífsins um störf í hafnarþjónustu í Sundahöfn verið í gildi áratugi sem fela meðal annars í sér forgangsréttarákvæði Eflingar um störf á hafnarsvæði Eimskips í Sundahöfn.
Um 40% starfsfólks Eimskips í Sundahöfn eru félagsmenn í Félagi hafnarverkamanna, sem var stofnað árið 2022 og er undirdeild í Sjómannafélagi Íslands. Þá hefur allt starfsfólk í Sundahöfn notið sömu kjara og samstarfsfólk þeirra í Eflingu óháð stéttarfélagsaðild.
Samtal er í gangi milli aðila um gerð kjarasamnings og vonir standa til þess að samningar náist án þess að til vinnustöðvunar komi.
Viðskiptavinir verða upplýstir um stöðu mála eftir því sem málum vindur fram.
„Við höfum nú aukið svigrúm til áframhaldandi samtals og við treystum því að það leiði til farsællar niðurstöðu og í takt við þá kröfu sem nú er hávær í samfélaginu um þá hagsmuni sem eru í húfi við að viðhalda stöðugleika á vinnumarkaði og efnahag landsins“, segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips.
Frekari upplýsingar veita:
Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs og samskipta: 825 7379, harpa@eimskip.com.
Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri Rekstrarsviðs: 825 7321, hpv@eimskip.com.