Fara á efnissvæði

Eimskip og Faroe Ship hafa borist tvær verkfallsboðanir frá Sjómannafélagi Íslands (SÍ).

Annars vegar er um að ræða boðaða vinnustöðvun bátsmanna og háseta í íslenskum höfnum á skipunum Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi tímabilið 12. apríl frá klukkan 13:00 og fram til 16. apríl hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. 

Hins vegar er um að ræða boðaða vinnustöðvun félagsmanna SÍ sem starfa á hafnarsvæði Eimskips í Sundahöfn tímabilið 13. apríl kl. 08:00 og fram til 15. apríl kl. 23:00 náist samningar ekki fyrir þann tíma.

Boðaðar aðgerðir SÍ komu Eimskip í opna skjöldu og eru mikil vonbrigði þar sem félagið leggur áherslu á að leita sanngjarnra lausna með samtali og samningum og mikilvægi þess að ekki sé samið umfram kjarasamninga á almennum vinnumarkaði á þessum krefjandi tímum.

Samningar um störf á hafnarsvæði í Sundahöfn
Samningar á milli Eflingar stéttarfélags og Samtaka atvinnulífsins um störf í hafnarþjónustu í Sundahöfn hafa verið í gildi um árabil sem fela meðal annars í sér forgangsréttarákvæði Eflingar um störf á hafnarsvæði Eimskips í Sundahöfn.

Árið 2022 var Félag hafnarverkamanna stofnað, sem undirdeild í Sjómannafélagi Íslands. Um 40% starfsfólks Eimskips í Sundahöfn eru félagsmenn í Félagi hafnarverkamanna, en ekki hefur verið gerður sérstakur samningur um störf í hafnarþjónustu við Félag hafnarverkamanna hingað til en þau starfa á sömu kjörum og samstarfsfólk í Eflingu. Engu að síður hafa staðið yfir viðræður á milli Eimskips og SÍ um störf í hafnarþjónustu um nokkurt skeið og undanfarið hafa þær verið á borði ríkissáttasemjara. 

Samningar um störf á skipum félagsins
Samningur við félagsmenn SÍ á skipum félagsins rann út um síðustu áramót. Sá samningur hafði tekið breytingum á gildistíma í takt við umsamdar launabreytingar á almennum vinnumarkaði, eða svokölluðum stöðuleikasamningi, auk þeirra hækkana sem gerðar voru sérstaklega fyrir viðkomandi störf. Sjómenn félagsins hafa því notið verulegra launahækkana á síðustu árum.

Viðræður við Sjómannafélagið um störf á skipum félagsins hafa staðið yfir undanfarna mánuði og voru þær enn í gangi þegar boðað var til vinnustöðvunar, en ekki komnar á borð Ríkissáttasemjara. Það er mat Eimskips að verkfallsboðun SÍ um störf á skipum félagsins sé ólögmæt og mun félagið vísa verkfallsboðun vegna sjómanna til Félagsdóms. 

Komi til vinnustöðvunar hafnarverkamanna mun það draga úr afköstum í Sundahöfn. Þá má gera ráð fyrir skerðingu á innflutningi til landsins á gulu og rauðu leiðum félagsins í næstu viku.

Við vonum að samningar náist án þess að komi til boðaðra aðgerða, en verðum undir það búin að takmarka áhrif hugsanlegs verkfalls á þjónustu við viðskiptavini og aðfangakeðju landsins.

Viðskiptavinir og aðrir hagaðilar verða upplýstir um leið og skýrari mynd liggur fyrir. 

Frekari upplýsingar veita: 
Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs og samskipta:  825 7379, harpa@eimskip.com.
Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri Rekstrarsviðs: 825 7321, hpv@eimskip.com.