Fara á efnissvæði

Eimskip tók þátt í sjávarútvegssýningunni The Seafood Expo North America sem haldin var í Boston dagana 15.-17. mars. Þessi árlega sýning er stærsta sjávarútvegssýning Norður-Ameríku, en sýnendur að þessu sinni voru yfir 1.200 talsins frá 48 löndum.

Sýningin er sem fyrr frábær vettvangur til að hitta lykilaðila í sjávarútvegi, en Eimskip býður heildarlausnir fyrir flutninga í geiranum. Starfsfólk okkar á sýningunni taldi um 20 manns frá 5 mismunandi starfssvæðum: Bandaríkjunum, Kanada, Færeyjum, Íslandi og Hollandi.

Sýningin stækkar ár frá ári, en gestir sýningarinnar í ár voru yfir 20.000 og fékk bás okkar fjölmargar heimsóknir, þar á meðal frá sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, Svanhildi Hólm Valsdóttur. Á myndinni að ofan er Svanhildur ásamt forstjóra Eimskips, Vilhelm Má Þorsteinssyni og dóttur Vilhelms, Þóreyju Eddu.

IMG 9534