Fara á efnissvæði

Eimskip hefur borist tilkynning frá Sjómannafélagi Íslands (SÍ) þar sem boðuðu verkfalli sem hefjast átti á þremur skipum félagins þann 12. apríl er aflýst. Kjaradeilunni hefur sömuleiðis verið vísað til ríkissáttasemjara. Brúarfoss, Dettifoss og Selfoss, verða því á óbreyttri áætlun eftir helgi.
 
Þá er samtal í gangi milli aðila vegna kjarasamningsgerðar hafnarverkamanna í SÍ. Þar stendur verkfallsboðun óbreytt, það er frá morgni mánudagsins 13. apríl til klukkan 23.00 miðvikudaginn 15. apríl.
 
Eins og komið hefur fram þá eru um 40% starfsfólks í Sundahöfn félagsmenn í SÍ og komi til vinnustöðvunar mun það draga eitthvað úr afköstum í Sundahöfn í næstu viku meðan á verkfalli stendur.
 
Við vonum að samningar náist án þess að komi til boðaðra aðgerða, en verðum undir það búin að takmarka áhrif hugsanlegs verkfalls á þjónustu við viðskiptavini og aðfangakeðju landsins.

Viðskiptavinum verður haldið upplýstum um stöðuna eftir því sem málum vindur fram.