Fara á efnissvæði

Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri Eimskips hlaut á mánudag Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi sem yfirstjórnandi ársins. Verðlaunin eru veitt árlega stjórnendum þeirra fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði, en yfirlýst markmið verðlaunanna er að stuðla að aukinni fagmennsku á sviði stjórnunar á Íslandi.

Í samantekt dómnefndar segir meðal annars:

„Frá því hann tók við störfum hefur hann lagt áherslu á að nútímavæða menningu félagsins með ýmsum leiðum til að tryggja að félagið sé vel í stakk búið til að takast á við áskoranir og tækifæri í nútíð og framtíð. Nú síðast leiddi hann stefnumótun sem unnin var alfarið innan félagsins og tryggði virka þátttöku frá starfsfólki alls staðar úr starfseminni. Útkoman er skýr og flott stefna sem mun styðja vel við starfsemina fram á veginn.“

Að þessu sinni hlutu fimm einstaklingar verðlaun, en þau voru veitt í þremur flokkum við hátíðlega athöfn á Grand Hótel að viðstöddum forseta Íslands. Ásamt Vilhelm hlutu eftirtaldir verðlaun:

Í flokki millistjórnenda þau Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri ELKO og Helga Halldórsdóttir forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka. Í flokki frumkvöðla Þór Sigfússon stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans. Auk þess hlaut Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi sérstök heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til stjórnunar.

Í dómnefnd sátu:
- Salóme Guðmundsdóttir, formaður dómnefndar, framkvæmdastjóri Ísorku og stjórnarformaður Kadeco.
- Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar.
- Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
- Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá.
- Katrín S. Óladóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hagvangs.
- Margrét Guðmundsdóttir, fyrrverandi forstjóri Icepharma og stjórnarkona.
- Þröstur Olaf Sigurjónsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Ritari dómnefndar er Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi