Fara á efnissvæði

Til að mega flytja hættulegan varning (s.s. eldfima vökva, gas, ætandi efni og sprengiefni o.fl.) verða bílstjórar að hafa sérstök réttindi sem kallast ADR réttindi. Fyrir flestar slíkar vörur dugar svokallað stykkjavörunámskeið en ef flytja á tanka, þarf viðbótar námskeið og einnig ef flytja á sprengiefni (þ.m.t. flugelda) þarf viðbótarnámskeið fyrir sprengiefni. 

Eimskip kennir þessi 3 námskeið.

Grunn námskeið:
Í byrjun þarf að taka svokölluð grunn námskeið sem eru eftirfarandi:

  • Stykkjavörunámskeið, þriggja daga grunnnámskeið (21 kennslustund), og verða allir að taka það. 
  • Tankanámskeið, 12 kennslustundir (einn langur dagur). Ökumaður öðlast réttindi til að flytja hættulegan farm í tönkum eftir þetta námskeið (sjálfstætt framhald af stykkjavörunámskeiðinu).
  • Sprengiefnaflutningur, rúmlega hálfs dags námskeið sem veitir réttindi til að flytja sprengifiman farm (sjálfstætt framhald af stykkjavörunámskeiðinu).

Vinnueftirlitið býður auk þess upp á námskeið fyrir flutning á geislavirkum efnum.

Endurmenntun
Réttindin gilda í 5 ár og þá þarf að taka endurmenntun ADR. Byrja má að taka endurmenntunarnámskeið allt að ári áður en þau renna út. Þau eru mun styttri eins og hér sést.

  • Stykkjavörunámskeið, 12 kennslustundir (tekið á einum löngum degi). 
  • Tankanámskeið, 7 kennslustundir.
  • Sprengiefnaflutningur, hálfur dagur.

Dagskrá námskeiða á höfuðborgarsvæðinu má sjá hér að neðan. 

Auk þess er hægt að biðja um námskeið fyrir hópa eða fyrirtæki á öðrum tímum, s.s. um helgar. Þá sinnir Eimskip einnig námskeiðum á landsbyggðinni eftir beiðni og þörfum.

Auglýst námskeið er háð því að lágmarksþátttökufjöldi náist og verða aðilar látnir vita ef ekki tekst að ná lágmarksfjölda.

Verðskrá* réttinda fram að áramótum er eftirfarandi:

  Grunnur Endurmenntun
Stykkjavara 72.000 kr. 33.000 kr.
Tankur 45.000 kr. 25.000 kr.
Sprengifim 22.000 kr. 22.000 kr.
Skírteinagjald Vinnueftirlits 12.855 kr. 12.855 kr.

*öll námsgögn eru innifalin í verði

Nánari upplýsingar um námskeiðið gefur Óskar Þór Hjaltason ADR kennari og ADR ráðgjafi V.othh@eimskip.com sími 840 3132.

ADR grunn og endurmenntunarnámskeið hjá Eimskip veturinn 2025-2026

September 2026

Reykjavík – Grunn námskeið stykkjavara, tankur, sprengifim

7. september

Stykkjavara

kl. 08:15

8. september

Stykkjavara

kl. 08:15

9. september

Stykkjavara

kl. 08:15

10. september

Tankar

kl. 08:15

11. september

Sprengifim efni

kl. 08:15

Mæting kl. 8:10 við anddyri Vöruhótels Eimskips

Október 2026

Reykjavík – Endurmenntun

5. október

Stykkjavara

kl. 08:15

6. október

Tankar

kl. 08:15

7. október

Sprengifim efni

kl. 08:15

Mæting kl. 8:10 við anddyri Vöruhótels Eimskips

Reykjavík – ENGLISH basic course, tank, explosives

12. Oktober

Packages Part 1

kl. 08:15

13. Oktober

Packages Part 2

kl. 08:15

14. Oktober

Packages Part 3

kl. 08:15

15. Oktober

Tanktransport

kl. 08:15

16. Oktober

Exposives

kl. 08:15

 

Attendance kl. 8:10 at the lobby of Eimskip's Warehouse Hotel

Nóvember 2026

Reykjavík – Grunn námskeið stykkjavara, tankur, sprengifim

13. nóvember

Stykkjavara

kl. 08:15

14. nóvember

Stykkjavara

kl. 08:15

15. nóvember

Stykkjavara

kl. 08:15

16. nóvember

Tankar

kl. 08:15

17. nóvember

Sprengifim efni

kl. 08:15 

Mæting kl. 8:10 við anddyri Vöruhótels Eimskips

Reykjavík – Endurmenntun

23. nóvember

Stykkjavara

kl. 08:15

24. nóvember

Tankar

kl. 08:15

25. nóvember

Sprengifim efni

kl. 13:00