Eimskip kynnir nýja siglingaleið frá Færeyjum til Evrópu
Í byrjun ágúst mun Eimskip hefja, á nýrri siglingaleið, beinar vikulegar siglingar frá Þórshöfn í Færeyjum til Rotterdam og til baka. Skipið Skógafoss sem verið hefur í rekstri Eimskips í nokkur ár mun þjóna á þessari nýju siglingaleið. Með þessu stígur félagið spennandi skref í að tengja Færeyjar og útflutning á ferskum afurðum mun betur við markaði á meginlandi Evrópu, sem og að opna á ný og reglulegri tækifæri á innfluttum vörum frá Evrópu til Færeyja.
„Við höfum verið að sjá aukningu í útflutningi á ferskum sjávarafurðum frá Færeyjum til Evrópu, sér í lagi laxi og er útlit fyrir að sá vöxtur haldi áfram“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri Eimskips.
„Áreiðanleg og vikuleg bein tenging milli Færeyja og Rotterdam er nauðsynleg til að styðja við þessa þróun og ná þannig fram skemmri flutningstíma og að sama skapi að skapa vaxtatækifæri fyrir félagið með auknu magni í flutningum. Með þessu skapast líka tækifæri fyrir innflutningsfyrirtæki í Færeyjum sem öðlast nú skilvirkari og sterkari aðfangakeðjur frá meginlandi Evrópu.
Þessi nýja siglingaleið sem við köllum Fjólubláu línuna okkar styður við blómlegt atvinnulíf í Færeyjum og er um leið staðfesting á framtíðarsýn Eimskips sem er að tengja samfélög og skapa hagsæld“ segir Vilhelm enn fremur.
Í byrjun september munum við að auki bæta við viðkomu í Álasundi í Noregi á bakaleiðinni til Færeyja frá Rotterdam og munum við þannig tengja Noreg og Færeyja saman með skilvirkum vikulegum hætti.
„Fjólubláa línan er frábær viðbót í okkar siglingakerfi og styrkir þjónustuframboð okkar í Norður-Atlantshafi. Við hlökkum til að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á þessa nýju leið, sérhæfða fyrir Færeyjar og frá byrjun september með mikilvæga tengingu við Noreg að auki“ segir Vilhelm að lokum.
Fyrsta brottför frá Þórshöfn verður 4. ágúst.