Siglingakerfið
Eimskip sinnir flutningum í Norður-Atlantshafi með vikulegum siglingum og tengir hafnir svæðisins við alþjóðlegt flutningsnet félagsins.
Allar leiðir
Eimskip sinnir vikulegum áætlunarsiglingum í Norður-Atlantshafi með tengingu við alþjóðlegt flutningsnet félagsins. Eimskip býður upp á fimm siglingaleiðir sem tengir saman Ísland, Færeyjar, Grænland, Noreg, Bretland, meginland Evrópu, Bandaríkin og Kanada. Leiðirnar eru hugsaðar með hraða og áreiðanleika í fyrirrúmi með sérhæfðar lausnir fyrir ferskar og frystar vörur.
Bláa leiðin
Hraðflutningar milli Reykjavíkur, Rotterdam og Teesport. Stuttur flutningstími hentar vel fyrir ferskvöru eins og fisk, ávexti, grænmeti og aðrar tímaháðar afurðir. Rotterdam tryggir áframhaldandi dreifingu til Evrópu og Teesport veitir skilvirkan aðgang að Bretlandi. Skip: Helle Ritscher, Jonni Ritscher.
Rauða leiðin
Vikuleg leið í samstarfi við Royal Arctic Line (RAL) þar sem stærri skip tryggja stöðugleika og burðargetu. Tengir saman Árósa, Helsingborg, Bremerhaven, Færeyjar, Ísland og Grænland og styður traust flæði inn- og útflutnings allt árið um kring. Skip: Dettifoss, Brúarfoss og Tukuma Arctica (RAL).
Gula leiðin
Hönnuð fyrir hraðflutning ferskra sjávarafurða frá Íslandi og Færeyjum til Bretlands með góðum dreifingarmöguleikum innan Bretlands. Leiðin býður einnig upp á hraðþjónustu Árósar → Færeyjar. Viðkomur í Fredrikstad (NO) og Szczecin (PL) aðra hverja viku tryggja góða dreifingarmöguleika í Skandinavíu og Eystrasaltslöndunum. Skip: Selfoss, Skógafoss.
Græna leiðin
Vikulegar viðkomur frá Reykjavík til Portland (ME), Halifax og Argentia. Leiðin tengist evrópskum leiðum Eimskips í Reykjavík og býður heildstæða lausn yfir Atlantshafið, þar á meðal tollþjónustu og innanlandsdreifingu. Skip: Bakkafoss, Pictor, EF Ava.