Eimskip er bakhjarl Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) og íslensku fótboltalandsliðanna. Samstarfið nær til allra landsliða Íslands, bæði karla og kvenna, og stuðlar að eflingu knattspyrnu á Íslandi.
Félagið hefur lengi verið þekkt fyrir að styðja við íþróttir og samfélagsverkefni. Með þessu samstarfi leggur Eimskip sitt af mörkum til að bæta aðstöðu og stuðning við landsliðin, sem og að efla grasrótarstarf í knattspyrnu.
Leikstöðuæfingar KSÍ og Eimskips
2025 hófst átaksverkefni KSÍ og Eimskips sem nefnist Leikstöðuæfingar. Í verkefninu fær valinn hópur ungra iðkenda tækifæri til að æfa undir handleiðslu færustu þjálfara landsins og reyndra leikmanna þar sem ein leikstaða á vellinum er í forgrunni hverju sinni. Davíð Snorri Jónasson aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla er umsjónarmaður verkefnisins, en fyrstu tvö árin hefur verið einblínt á varnarleik undir yfirskriftinni Elskum að verjast.
HÚN í stað HÚH
Í aðdraganda EM 2025 í knattspyrnu kvenna sendi Eimskip frá sér nýja auglýsingu þar sem víkingaklappið fær nýja merkingu. Með auglýsingunni vill félagið hvetja A landslið kvenna og um leið að styrkja ásýnd og sýnileika kvennaknattspyrnunnar. Þau markmið endurspegla einnig áherslur Eimskips í jafnréttismálum.
Auglýsingin, sem ber yfirskriftina „Hún! – Örugg sending í höfn“, leikur sér að tengingum milli flutninga og fótbolta. Taktfast víkingaklappið og HÚH óma í gegnum myndbandið. En þegar íslenska kvennalandsliðið gengur út á nýja þjóðarleikvanginn, áhorfendur rísa á fætur og Tólfan leiðir stemninguna – þá kemur hið óvænta í ljós: það sem virtist vera HÚH reynist vera HÚN, yfirlýsing til heiðurs stelpum og konum í knattspyrnu.
Frá hafnarbakka til þjóðarleikvangs
Í auglýsingunni mætast heimar ungra stelpna í fótbolta, ungra kvenna á leið á völlinn, stuðningsfólks í gleði, og flutninga. Skip Eimskips siglir inn fallegan fjörð og flutningabíll sést aka um íslenskt landslag og öll leiðin liggur að þjóðarleikvanginum þar sem stelpurnar okkar stíga á völlinn.
„Við vildum fanga kraftinn, stoltið og þá samstöðu sem kvennalandsliðið kveikir í þjóðinni þegar það stígur á stóra sviðið. Þegar hugmyndin að auglýsingunni um að nota HÚN í stað HÚH kom þá stukkum við á hana. Hún speglaði okkar sýn og markvissar áherslur í jafnréttismálum, og við ákváðum að gera hana að veruleika“, segir Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs hjá Eimskip.