Rík tengsl Eimskips við íslenska listasögu
Saga Eimskipafélags Íslands er samofin þjóðarsögu Íslendinga. Stofnun þess var þáttur í sjálfstæðisbaráttunni og starfssaga félagsins endurspeglar þróun atvinnulífs á Íslandi. Allt frá stofnun félagsins hafa forsvarsmenn þess vitað mikilvægi þess að styðja við ýmsa menningarstarfsemi líkt og íslenska myndlist. Það hefur félagið gert með því að fjárfesta í myndlist og hafa íslenskir myndlistarmenn sem svifið hafa seglum þöndum á vit ævintýranna utan landsteinanna löngum notið velvilja félagsins. Safneign félagsins telur hundruð verka og voru valin verk sýnd í janúar á 110 ára afmæli félagsins á listasýningunni Hafið hugann ber.
Eimskip heldur nú áfram að sinna ábyrgðarhlutverki sínu gagnvart íslenskri myndlist, en á 110 ára afmæli félagsins 17. janúar 2024 var ákveðið að stofna nýjan listasjóð í þeim tilgangi að efla myndlistarmenn á Íslandi í sinni listsköpun. Framvegis verður úthlutað árlega úr sjóðnum á haustmánuðum, en helstu upplýsingar eru:
- Heildarfjárhæð styrks er 3 milljónir króna og skiptist sú upphæð milli styrkþega
- Styrktir eru 2-3 íslenskir myndlistarmenn í hvert sinn
Úthlutunarnefnd sér um að fara yfir umsóknir, en í henni eru:
- Óskar Magnússon, stjórnarformaður Eimskips
- Guðmundur Hagalínsson, fyrrum starfsmaður Eimskips til áratuga með sérþekkingu á safneign félagsins
- Katrín Eyjólfsdóttir, sýningarstjóri myndlistarsýningar Eimskips, Hafið hugann ber
Umsóknarferli
Hægt er að sækja um styrk úr Listasjóði Eimskips með því að fylla út þetta form. Umsóknarfrestur 2026 er 5. nóvember.
Almennar fyrirspurnir má senda á myndlist@eimskip.com
Styrkurinn er ætlaður fyrir upprennandi íslenska listamenn.
Umsóknir skulu innihalda eftirtalin gögn (best er að fá allt í einu PDF skjali):
Ferilskrá - þ.m.t. upplýsingar um nafn, kennitölu, reikningsnúmer, heimilisfang, símanúmer og netfang; auk tengla á heimsíðu og/eða samfélagsmiðla ef við á.
Hugleiðingar - hámark 400 orð.
Sýnishorn af 2-4 verkum með stuttum skýringartexta fyrir hvert verk (hámark 200 orð hver).
Styrkhafar fyrri ára
Listamennirnir þrír sem hlutu styrk í fyrstu úthlutun:
Baldvin Einarsson er fæddur 1985 og er búsettur í Antwerpen í Belgíu. Í umsögn dómnefndar segir:
„Baldvin vinnur að því að skapa skýrar myndlíkingar sem varpa ljósi á óskýr og óræð fyrirbæri. Í verkum sínum leggur hann áherslu á leik og tilfinningar og leitast við að tjá hið ósegjanlega í gegnum listræna tjáningu. Með þessari nálgun býr hann til verk sem ögra bæði skynjun og hugsun áhorfandans.“
Helena Margrét Jónsdóttir er fædd 1996 og er búsett í Reykjavík.
„Helena Margrét fæst við raunsæis olíumálun þar sem hún sameinar hefðbundna tækni og tímalaus viðfangsefni með nútímalegum blæ. Í verkum sínum rannsakar hún flókið samband milli þess girnilega og ógeðslega og veltir upp spurningum um löngun og óþægindi. Hún tekst á við viðfangsefni á borð við blóm, vín, skordýr og hendur ásamt nútímalegum hlutum sem tákna girnd í dag, eins og sælgæti, gosdrykki, skó og handtöskur. Með þessari nálgun býr hún til verk sem ögra skynjun áhorfandans og bjóða upp á marglaga túlkun.“
Matthías Rúnar Sigurðsson er fæddur 1988 og er búsettur í Reykjavík.
„Matthías Rúnar sýnir einstaka hæfni til að sameina forvitni, sköpun og frásögn í list sinni, þar sem hann notar stein sem miðil til að kanna tímalaus áhrif myndmálsins. Verk hans eru djúpstæðar rannsóknir á sjónarhorni, menningarsögulegum tengingum og áhrifum listar á áhorfandann. Með því að brúa bilið milli hins gamla og nýja býr hann til verk sem bæði viðhalda arfleifð og ýta undir nýja nálgun í höggmyndalist.“
Fritz Hendrik IV er fæddur 1993 og býr og starfar í Reykjavík. Í umsögn dómnefndar segir:
„Listsköpun Fritz Hendrik byggir á forvitni hans um sjálfa tilveruna og þau fjölbreyttu form sem hún getur tekið, eftir því hvernig við veljum að horfa á heiminn. Í verkunum endurspeglast sú hugmynd að veruleikinn sé síbreytilegur og að upplifun okkar mótist af sjónarhorni, nærveru og athugun. Með þessari nálgun tekst listamanninum að skapa flókið og heillandi samtal milli áhorfanda og verks, þar sem hvorugt er einhlítt—heldur kvikt og opið fyrir nýrri merkingu.
Sýningar listamannsins mynda ríka hugmyndafræðilega heild sem engu að síður viðheldur leikandi frelsi og margvíslegum túlkunarmöguleikum. Áhorfandinn er hvattur til að staldra við, skoða og endurskilgreina eigin væntingar um list og veruleika.
Nálgun listamannsins er bæði fræðileg og tilraunakennd. Hann nýtir heimspekilegar hugmyndir til að kanna eðli reynslu og þekkingar, en jafnframt dregur hann inn áhrif úr hversdagsleikanum og hinu persónulega. Sterk tenging við handverkið liggur að baki listsköpunnar Fritz, jafnt sem um er að ræða útfærslur á tvívíðum verkum og þrívíðum.
Fritz vinnur verk sín af einlægni, innsæi og óbeislaðri forvitni; sem hvetur áhorfendur til að sjá heiminn allan upp á nýtt.“
Helga Páley Friðþjófsdóttir er fædd 1987 og býr og starfar í Reykjavík. Í umsögn dómnefndar segir:
„Listsköpun Helgu Páleyjar Friðþjófsdóttur á sér rætur bæði í teikningunni sem og í málverkinu, miðlum sem hún nálgast bæði sem rannsókn og samtal við sjálfa sköpunina. Í verkum hennar eru form, litir og áferð látnir þróast í rólegu, hugleiðandi ferli þar sem hvert lag af málningu verður að nýjum þætti í frásögninni. Hún byggir upp myndir sem síðan eru skafnar niður, umbreyttar og unnar á ný — þar til þær finna þann jafnvægispunkt sem kallar fram réttan tón á striganum. Þessi endurtekna tilurð skapar verk sem eru bæði brothætt og ákveðin, opin og þó áþreifanlega nærverandi.
Málverkið er fyrir Helgu ekki aðeins mynd, heldur leiðarvísir; safn minninga sem birtist í hreyfingu og uppbyggingu litanna. Hún lítur á myndlistina sem eins konar trekt sem flokkar, sía og endurspeglar það sem verður á vegi hennar, hvort sem um er að ræða hugmyndir, tilfinningar eða óljósar myndir úr daglegu lífi. Þessi nálgun gerir verk Helgu persónuleg og samtímis algild — þau tala til áhorfandans á óorðuðu tungumáli þar sem leifar minninga og myndbrota renna saman í nýja heild.
Helga Páley skapar þannig verk sem eru ekki aðeins sjónræn reynsla heldur um leið ferli íhugunar. Þau bjóða áhorfandanum að nema staðar, fylgja litnum eftir og finna í sér samsvörun við þá kyrru en lifandi orku sem einkennir málverkið hennar.“
Julie Sjöfn Gasiglia er fædd 1990 í Frakklandi. Hún býr og starfar í Reykjavík. Í umsögn dómnefndar segir:
„Listsköpun Julie Sjafnar mótast af dýpri rannsókn á sambandinu milli mannkyns og náttúrunnar, sambandi sem hún upplifir á sama tíma náið og óljóst, nærverandi og þó fjarlægt. Í verkum hennar endurspeglast löngun til að tengjast hinum lifandi heimi á ný — að skilja stöðu mannsins í umhverfi sem hann bæði er hluti af og hefur áhrif á. Þessi áleitna togstreita verður drifkraftur í hugmyndavinnu hennar og markar þá fagurfræðilegu stefnu sem einkennir myndlistina.
Verk Julie eru skynrænar rannsóknir á því hvernig mannleg tilvist, athafnir og samfélagsgerð móta landslagið, bæði það náttúrulega og það manngerða. Hún nálgast efnið af gagnrýninni forvitni og notar sjónræna tjáningu ekki til að svara spurningum heldur til að opna rými þar sem áhorfendur geta íhugað eigin sýn á náttúru, vald og samlíf tegunda. Hvort sem hún vinnur með votlendi, þarmaflóru eða borgarskapað landslag, þá kallar list hennar fram nýjar spurningar um ábyrgð, þátttöku og tengslanet lífsins.
Margvíslegur efniviður leikur stórt hlutverk í ferlinu. Hún vinnur með leir, málm, hljóð og rafeindatækni, og leyfir efnum að leiða sig áfram. Þannig verða skúlptúrar og innsetningar til í samspili innsæis, tilraunagleði og rannsóknarvinnu. Þrátt fyrir fræðilegar undirstöður er ferlið lifandi, sveigjanlegt og opið — og gefur verkunum þá óræðu og heillandi nærveru sem einkennir listræna rödd Julie Sjafnar.“