Fara á efnissvæði

Þann 18. júní síðastliðinn afhjúpaði Eimskip í samvinnu við afkomendur heimafólks, minnisvarða á Látrum í Aðalvík á Vestfjörðum. Tilefnið er að í ár eru 110 ár síðan Goðafoss strandaði við Straumnes, þann 30. nóvember 1916. Minnisvarðinn er einnig reistur til að minnast með þakklæti frækilegs björgunarafreks heimafólks á Látrum í miklu aftakaveðri, en kraftaverk þykir að tekist hafi að bjarga öllum 58 um borð, áhöfn og farþegum, og einnig stærstum hluta farmsins.

Goðafoss var fyrsta íslenska skipið sem búið var loftskeytatækjum. Kom skipið í fyrsta sinn til Reykjavíkur 13. júlí 1915 og hafði því einungis verið í þjónustu Eimskipafélagsins í rúmt ár þegar það strandaði við Straumnes. Burðargetan var um 1.500 tonn, en til samanburðar má geta þess að burðargeta Brúarfoss og Dettifoss, stærstu skipa félagsins í dag er um 26.000 tonn eða rúmlega 17 sinnum meiri.

Minnisvarðinn unninn úr flakinu

Minnisvarðinn er gerður úr minjum úr flaki Goðafoss, en björgunarsveitin Ernir í Bolungarvík sótti bút úr flakinu í fjöruna undir Straumneshlíð núna í vor. Listaverkið hannaði Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir listakona, en Sigurjón Sveinsson og félagar í Vélsmiðjunni Mjölni í Bolungarvík smíðuðu minnisvarðann að forskrift Hrafnhildar og settu hann upp á Látrum. Þá blessaði séra Magnús Erlingsson, prófastur á Vestfjörðum, verkið.

Við erum stolt af þessu verki sem við vonum að muni bæði gleðja fólk sem fer um þetta einstaka svæði, en líka varpa ljósi á og hjálpa til að halda minningu þessa frækilega björgunarafreks á lofti um ókomna tíð.

Sérstakar þakkir fá Matthildur Guðmundsdóttir, Ólöf Sigríður Björnsdóttir og Margrét Sæmundsdóttir sem leiddu vinnu afkomenda við þetta verkefni.